Landsmót UMFÍ – Móttaka.

Kæru félagar

Í tilefni landsmóts UMFÍ verður FEBH með opið hús í Þorlákssetri föstudagskvöldið 23. júní kl. 21.00-23.00 og laugardaginn 24. júní kl. 14.00-16.00.  Sýning verður á myntsafni Helga Ívarssonar.  Einnig verður tímaritið Húsfreyjan frá Kvenfélagasambandi Íslands kynnt og hægt að gerast áskrifandi á staðnum. Kaffi á könnunni.  Gaman væri að sá sem flesta félaga og gesti.

Kær kveðja,

Jónína Haraldsd. ritari stjórnar FEBH

Korpúlfar í heimsókn.

“Góðan dag kæru félagar

Fimmtudaginn 8. júní n.k. ætla Korpúlfar félag eldri borgara í Grafarvogi Reykjavík að heimsækja okkur í Þorlákssetur kl. 15.00.

Mikið þætti okkur vænt um ef einhverjir úr félaginu sæju sér fært að koma  og heilsa upp á þau þar sem þau tóku svo vel á móti okkur síðastliðið haust þegar við fórum til þeirra.  Kaffi á könnunni.”

Kær kveðja,

Jónína Harldsd. ritari stórnar FEBH