Klassisk músik

Þórir Hermann Óskarsson sem ætlaði að koma til okkar miðvikudaginn 24. nóv. og spila klassiska músik Þarf að fresta þessu fram yfir ármót. Vonandi fáum við hann til að koma einhvern tíma í janúar
Stjórnin

Jólahlaðborð

Minnum félaga sem ætla á jólahlaðborðið að mæta tímanlega að Þorlákssetri.

Rútan fer kl. 17:30 á laugardaginn 20. nóv.

Jólahlaðborð

Þessa tilkynningu fengum við frá STRACTA hotel fyrir helgina.

  • Fjöldatakmörkun verður 50 manns í rými og munum við vera með 50 manna hólf með sér jólahlaðborði í hverju fyrir sig.
  • Afgreiðslutími styttist til 22:00 og þurfa gestir að vera farnir 23:00. Í ljósi þess hvetjum við gesti til að mæta snemma í jólahlaðborðið sem mun hefjast klukkan 18:00.
  • Grímunotkun verður skylda þegar gengið er að og frá borði sem og þegar matur er sóttur í hlaðborðið.Boðið verður upp á einnota hanska og skipt verður ört um öll áhöld í hlaðborðinu.
  • 1 metra regla verður í gildi.
  • Settar verða upp fleiri spritt stöðvar og gestir hvattir til að spritta sig ört.
  • Þrif verðar aukin á sameiginlegum snertiflötum eins og salernum.
  • Allt okkar starfsfólk mun fara í covid-próf áður en það mætir á vakt
  • Viljum við hvetja gesti okkar til að gera slíkt hið sama fyrir komu.
Förum varlega og virðum tilmæli heilbrigðisyfirvalda.
Kær kveðja,
Starfsfólk Stracta Hótel
Ása gjaldkerinn okkar talaði við þau í morgun og var sagt að við þyrftum ekkert að hafa áhyggjur af covid prófi.  Við erum flestöll ef ekki öll búin að fá þriðju sprautuna.  Við þurfum samt að vera með grímur í rútunni og þegar við förum inn á hótelið
Ef einhver vill fara í hraðpróf þá er það tekið í bílageymslunni undir krónunni það er opið milli 10-12 en þið verðið sjálf að panta prófið á https://www.heilsuvera.is/ hver fyrir sig

FARIÐ VERÐUR FRÁ ÞORLÁKSSETRI LAUGARDAGINN 20. NÓVEMBER KL. 17:45.

Gott að vera tímanlega.

Heilsuvera - Vefur fyrir almenning um heilsu og áhrifaþætti hennar | Heilsuvera
HEILSUVERA.IS
Heilsuvera – Vefur fyrir almenning um heilsu og áhrifaþætti hennar | Heilsuvera

Kóræfing

Stjórn kórsins hefur ákveðið að fella niður kóræfinguna í dag vegna þess að það eru svo mörg Covid smit.
Látum vita hvernig verður í næstu viku

Brids og félagsvist

Við hvetjum alla þá sem hafa gaman af því að spila brids eða félagsvist að taka þátt hér í Þorlákssetri
Félagsvistin er einu sinni í viku, á þriðjudögum kl. 13-16
Brids er tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum kl. 13-16
Kveðja
Stjórn FEBH