2ja daga ferð – Borgarfjörður -Dalir -Snæfellsnes

Félagi eldri borgara í Hveragerði er gefinn kostur á 10 sætum í þessa ferð.                      

Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni.                                                                                 

Borgarfjörður – Dalir – Snæfellsnes 31. maí – 1. júní 2019
Félagið efnir til 2ja daga ferðar á þetta svæði  föstudaginn 31. maí.
Lagt af stað úr Stangarhyl klukkan 9 um morguninn og ekið sem leið liggur upp í Borgarnes, þar sem höfð verður stutt viðdvöl og við skoðum okkur aðeins um á staðnum. Þaðan verður haldið upp í Norðurárdal  og komið við í Bifröst (100 ára afmæli skólans) og kíkt á fossinn Glanna í Norðurá. Þar í hrauninu tökum við upp nestið okkar áður en við höldum um Bröttubrekku og vestur í Dali. Komum við í Búðardal og ökum um Skógarströnd áleiðis til Stykkishólms. Þar verður gist á Hótel Stykkishólmi  og borðaður kvöldmatur. Skoðum okkur um í Stykkishólmi við komuna þangað eða eftir morgunverð daginn eftir. Daginn eftir liggur leiðin  út á Snæfellsnes þar sem komið verður við á nokkrum stöðum. Hádegishressing á Hellnum eða Arnarstapa. Á leiðinni til Reykjavíkur höfum við viðdvöl á sunnanverðu Snæfellsnesi  eftir veðri og vindum. Áætlaður komutími til Reykjavíkur um klukkan 18. Verðið er kr 39.500 fyrir félagsmenn FEB Rvk . kr 500 meira á mann fyrir önnur félög.
Innifalið í verði er akstur í rútunni, gisting, kvöldmatur og morgunmatur í Stykkishólmi og hádegishressing á laugardeginum. Fararstjóri og leiðsögumaður Kári Jónasson.

Félagi eldri borgara í Hveragerði er gefinn kostur á 10 sætum í þessa ferð. Tilboðið gildir til miðvikud. 17. apríl. Bókanir á feb@feb.is eða síma 5882111. Það bókar hver fyrir sig.

 

 

0 replies

Skildu eftir svar

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *