24
Fréttatilkynning frá Félagi eldri borgara í Hveragerði.
Engar athugasemdir | Innsett af vefstjóra í Fréttir
Rabbfundir á fimmtudagsmorgnum kl. 10 í Þorlákssetri.
Dagskrá í febr. 2012:
2. febr. Kristján Runólfsson segir sögur og fer með kveðskap.
9. febr. Jóhanna Margrét Hjartardóttir, menningar- og frístundafulltrúi Hveragerðisbæjar kemur í heimsókn.
16. febr. Enginn morgunfundur. Aðalfundur kl. 14.00 í Þorlákssetri.
23. febr. Hittumst kl. 11 í Listasafninu og skoðum nýja sýningu með Ingu safnstjóra.
Þorrablót félagsins verður haldið föstudaginn 10. febr. í Hótel Hveragerði.
Blótið hefst kl. 19.00, húsið opnar kl. 18.30.
Söngur, grín og góður matur. Verð kr. 5000.
Vinsamlegast skrifið ykkur á lista í Þorlákssetri og greiðið inn á reikning félagsins fyrir 2. febr.
Skemmtinefndin.
Farið verður í Þjóðleikhúsið að sjá Heimsljós 18. febr. Miðaverð kr. 3.600.
Það þarf að skrifa sig á lista í Þorlákssetri og borga í bankanum fyrir 18. jan.
Rútuferð, kostar 1.500 kr. Brottför frá Þorlákssetri kl. 18.30.
Bankaupplýsingar: Kennitala 691189-1049; banki 0314, höfuðbók 26, reikningur 52.
Við óskum ykkur öllum gæfuríks nýs árs. Sjáumst sem flest hress og kát á nýju ári.
Skemmtinefndin
Fimmtudagar kl. 10 í Þorlákssetri.
12. jan. Sr. Ninna Sif Svavarsdóttir kemur í heimsókn. Heitt súkkulaði og kramarhús með rjóma í boði skemmtinefndar.
19. jan. Inga Jónsdóttir, forstöðumaður Listasafns Árnesinga, fræðir okkur um starfsemi safnsins.
26. jan. Stína og Anna Jórunn rifja upp ýmislegt gamalt og gott í tali og tónum.
Skemmtinefnd.
Stjórn FEBH óskar öllum félagsmönnum gleðilegs nýárs og þakkar samstarfið á liðnu ári. Félagsstarfið hefst samkvæmt dagskrá mánudaginn 9. janúar. Dagskráin er á vefnum okkar, http://www.hvera.net og á auglýsingatöflum í Þorlákssetri. Athugið breyttan tíma á kóræfingum og vatnsleikfimi. Útskurður verður ef næg þátttaka fæst, bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Hafið samband sem fyrst við Jóhann (695 3122 eða johg@centrum.is), eða skráið ykkur á blað sem ligggur frammi í Þorlákssetri. Kennari verður eins og áður Valdimar Ingvason. Þorrablótið verður í Hótel Hveragerði föstudaginn 10. febrúar. Takið daginn frá, dagskrá auglýst síðar. Aðalfundurinn verður fimmtudaginn 16. febrúar í Þorlákssetri og hefst klukkan 14.00. Dagskrá samkvæmt félagssamþykktum. Athygli er vakin á auglýsingu um stjórnarkjör sem liggur frammi hér á vefnum og í Þorlákssetri. Frestur til að tilkynna um framboð í laus stjórnarsæti er til 19. janúar. Stjórnin.
9
Frá uppstillingarnefnd vegna aðalfundar 2012
Ein athugasemd | Innsett af vefstjóra í Fréttir
Aðalfundur 2012
Meðal breytinga er gerðar voru á samþykktum Félags eldri borgara á aðalfundi 17. febrúar 2011 var nýr 6. kafli svohljóðandi:
Uppstillingarnefnd.
Stjórn félagsins skipar þrjá menn í uppstillingarnefnd og setur henni formann. Uppstillingarnefndin skal gera tillögur um: Formann félagsins, menn í stjórn og varastjórn og skoðunarmenn ársreikninga. Einnig fulltrúa á þing LEB það ár sem þingið er haldið.
Tillögur uppstillingarnefndar skulu liggja frammi á skrifstofu félagsins í tvær vikur fyrir aðalfund og skulu þær auglýstar.
Tillögur félagsmanna um einstaka menn til stjórnarkjörs skulu berast uppstillingarnefnd eða skrifstofu félagsins minnst fjórum vikum fyrir aðalfund.
Samkvæmt þessu hefur stjórnin skipað í uppstillingarnefnd: Jóhann Gunnarsson, sem er formaður, Egil Gústafsson og Laufeyju S. Valdimarsdóttur.
Aðalfundur hefur verið ákveðinn fimmtudaginn 16. febrúar 2012.
Uppstillingarnefnd auglýsir samkvæmt ofansögðu eftir tillögum um formann og aðra stjórnarmenn.
Úr stjórn eiga að ganga Hrafnhildur S. Björnsdóttir, formaður, Pálína Snorradóttir og Jóhann Gunnarsson stjórnarmenn og Kristbjörg Markúsdóttir varamaður. Tillögum skal komið til formanns uppstillingarnefndar í síðasta lagi fimmtudaginn 19. janúar 2012, skriflega eða í tölvupósti (febh@hotmail.co.uk eða johg@centrum.is ).
Uppstillingarnefnd mun síðan hinn 2. febrúar birta tillögur sínar, ásamt öðrum tillögum sem berast, á auglýsingatöflu félagsins í Þorlákssetri.
Athygli er vakin á því að ekki verður tekið við tilnefningum eftir 19. janúar og þar af leiðandi ekki heldur á aðalfundinum sjálfum.
8. desember 2011,
Uppstillingarnefnd
(Leiðrétt auglýsing 12. desember 2011)
Hér má smella á viðburðaskrá haustið 2011. (PDF, 96K)
Eftirfarandi hefur borist félaginu:
Komið öll sæl og blessuð. Þá er loks komið að því, að við bjóðum eldri borgurum upp á þann möguleika að koma og kaupa sér mat hjá okkur í Ási.
Til að byrja með verður þetta aðeins í Ásbúð Bröttuhlíð 20.
Verð pr. máltíð er 800 kr.
Ef fólk hefur hug á að koma í mat þarf að láta vita fyrir kl. 1030 í síma 4802070,
Ef fólk verður fast í mat þarf ekki að láta vita. Hægt er að skoða matseðilinn á heimasíðunni okkar www.dvalaras.is.
| Kær kveðja, Eyjólfur K. Kolbeins – matreiðslumaður Sími: 480-2000 – Fax: 480-2029 www.dvalaras.is |
Heimsending bóka til eldri borgara á fimmtudögum
og annarra sem ekki eiga heimangengt vegna fötlunar eða veikinda.
Tekið við pöntunum í síma 483-4531.
BÓKASAFNIÐ ER OPIÐ
Kl. 13-19 mánudaga – föstudaga og kl. 11 – 14 á laugardögum.
Dagskrá á heimasíðu bókasafnsins (smellið í tengilinn)
Hlíf Arndal forstöðumaður


