Útskurður

Tréútskurður og tálgun

Tími: Á föstudögum í Þorlákssetri kl. 13:30 – 15:00

Leiðbeinandi: Sigurður Valur Magnússon

Handavinna

Handavinna er á mánudögum kl. 13.00 – 15:00  í Þorlákssetri.

Umsjón: Guðríður Jónsdóttir

Bingó

Félagsvist/Bíngó er kl. 13.00 á þriðjudögum í Þorlákssetri

Félagsvist

Félagsvist/Bingó er kl. 13.00 á þriðjudögum í Þorlákssetri.

Bridge

Brids er kl.13.00-15.30 á mánudögum og fimmtudögum í Þorlákssetri

Vatnsleikfimi

Vatnsleikfimi:

Leiðbeinandi er Nína Dóra Óskarsdóttir.

Námskeiðið er haldið í sundlaug Heilsustofnunar NLFÍ, Náttúrulækningafélags Íslands við Grænumörk.

Gönguhópurinn

Jóna Einarsdóttir stjórnar Gönguhópnum. Sími: 483 4315.

Göngutúrar eru farnir frá Þorlákssetri kl. 10.00  alla þriðjudaga, allt árið.


Páskaeggjaganga í Hamarsskógi 26. mars 2013. (ljósm. Steinunn Þórarinsdóttir)

Boccia

Boccia og leikjanefnd:

Boccia fer fram í Þorlákssetri á miðvikudögum og föstudögum kl. 10.00.

Þessar myndir eru teknar fyrir nokkrum árum, líklega 2006

Hópstjóri: Vilhjálmur Albertsson  s. 869-2704

DSCN0865

F.v. Guðmundur og sonur hans, Arnfríður, ? , Gústaf og Ragnheiður

DSCN0863

Íþróttir og hreyfing

Sá sem hreyfir sig reglulega fær þetta í kaupbæti:

  • Sjálfstæði – möguleikan á að búa heima sem lengst.
  • Vellíðan – umframorku til þess að takast á við gráan hversdagsleikann.
  • Félagsskap – utandyra eða innan.
  • Tengsl við æskuna – aukinn þrótt til þess að njóta samveru við börn og barnabörn.
  • Ferðagleði – er nægilega hraustur til þess að fara í langferðir.
  • Nýtur náttúrunnar – getur ferðast um fjöll og firnindi.
  • Sefur vel – fær hraustlegt og gott útlit.

(Úr bókinni: Árin eftir sextugt)

Það sem er í boði hjá F.E.B.H:

Boccia á miðvikudögum og föstudögum kl. 10.00 í Þorlákssetri.

Göngutúrar á þriðjudögum kl. 10 frá Þorlákssetri.

Vatnsleikfimi með Rakel Magnúsdóttir á miðvikudögum kl. 16:00 – 17:00 í sundlaug N.L.F.Í.

Vatnsleikfimi er alhliða og góð þjálfun fyrir allan aldur og hefur lengi verið mjög vinsæl líkamsrækt. Þjálfun í vatni veitir viðráðanlega mótstöðu, eykur vöðvatyrk, styrkir hjarta og lungu, eykur þol og sveigjanleika, lækkar blóðþrýsting og er alveg sérlega góð og skemmtileg samvera með öðru fólki.

Yoga Nidra með Steinunni Aldísi Helgadóttur á þriðjudögum kl. 18:00 – 18:40 í Kapellunni Heilsustofnun

Yoga Nidra er form af hugleiðslu þar sem iðkendur liggja á dýnu og látur fara vel um sig með kodda og teppi.  Kennarinn leiðir þátttakendur inn í djúpa meðvitaða slökun, þar sem hugurinn er í ástandi líkt og milli svefns og vöku. Í Yoga Nidra gefst tækifæri til að losa um spennu og streitu í líkamanum, bætt svefn, lækka blóðþrýsting og styrkja andlegt jafnvægi. Einn tími í Yoga Nidra er talinn vera álíka endurnærandi og þriggja tíma svefn.

Yoga með Helgu Björk Bjarnadóttur í Kapellan Heilsustofnun

Yogaástundun eru nærandi tímar, þar sem boðið er upp á einfaldar yoga stöður og ávalt eftir getu hvers og eins. Yoga iðkun eykur líkamlegan styrk, þol og sveigjanleika. Hugleiðsla og öndunaræfingar í tímum, hjálpa okkur að dýpka andardráttinn og kyrra hugann. Það er aldrei of seint að byrja að ástunda yoga og allt á þínum forsendum.