Leshópur

Heil og sæl
Við hittumst um daginn nokkrar konur sem hafa áhuga á að halda áfram með
leshópinn/bókmenntahópinn sem starfræktur var á vegum FEBH, en með örlítið breyttu formi. Við
viljum kanna hvort fleiri hafi áhuga.
Hugmynd okkar er að fundirnir verði frjálslegir og á hverjum fundi lesi 2-4 aðilar, sem ákveðnir eru á
fundinum á undan, sjálfvalið efni. Það má vera kafli úr skáldsögu, smásaga, fræðigrein úr bók eða
tímariti, nokkur ljóð eða hvaðeina sem viðkomandi finnst áhugavert. Jafnframt þarf viðkomandi að
kynna höfund, kynna bókina eða fjalla aðeins um efnið. Eftir hvern lestur verði boðið upp á
umræður. Þetta býður upp á fjölbreytni og ef til vill hvatningu til að kynna sér eitthvað sem annars
hefið ekki þótt áhugavert. Einnig verði að hausti valin ein bók sem allir lesi yfir „önnina“ og verði hún
tekin til umræðu undir lok „annarinnar“. Sama gert að vori. Auðvitað koma svo aðrar hugmyndir til
greina.
Við sjáum að á dagskrá FEBH er laus tími í Þorlákssetri á föstudagsmorgnum og gætum við þá verið
þar kl. 10:30-12. Viljum við prófa þann tíma, hann er betri en tíminn sem við höfðum síðast.
Það væri gott ef þeir sem áhuga hafa hefðu samband við mig (hlifarndal@gmail.com, s. 691-8367).
Við ætlum að byrja föstudagsmorguninn 4. nóvember kl. 10:30 og er öllum áhugasömum frjálst að
koma og vera með, hvort sem þeir eru búnir að hafa samband eða ekki. Til að byrja með verðum við í
innri salnum, en ef fjölmenni verður færum við okkur yfir í stærri salinn.
Með bestu kveðju,
Hlíf S. Arndal, fyrir hönd hópsins.

Sviðaveisla

Sviðaveisla á vegum FEB Hveragerði þann 11.11 kl. 19 í Rósakaffi.

Kæru félagar í Félagi eldri borgara í Hveragerði.  Á hugmyndafundinum okkar í maí sl. kom fram áhugi á að halda sviðaveislu.  Þá er við hæfi að það verði að veruleika núna við lok sláturtíðar, föstudaginn 11. nóvember kl. 19 í Rósakaffi.  Við höfum fengið mjög gott tilboð þar, og félagið niðurgreiðir enn um helming, svo við getum boðið ykkur máltíðina; svið (heit eða köld) með kartöflustöppu og rófustöppur á kr. 1000 á mann.  Einnig verða drykkjarföng á mjög góðu verði.  Karlakórinn hefur gefið vilyrði fyrir að líta við hjá okkur.  Er til nokkuð þjóðlegra á Gormánuði en SVIÐ, BJÓR OG KARLAKÓR?

Staðfesta þarf þátttöku með því að svara tölvupósti eða hringja í síma 4835216 í Þorlákssetri  í síðasta lagi föstudaginn 4.11.  Vakt verður við símann þriðjudaginn 1.11, miðvikudaginn 2.11 og fimmtudaginn 3.11,  kl. 13-16

Við munum svo taka á móti ykkur við dyrnar og merkja við á þátttökulistanum. Þið greiðið síðan ykkar hlut við kassann í Rósakaffi.

Með bestu kveðjum

Stjórnin

Málverkasýning

Helga Haraldsdóttir ætlar að hafa málverkasýningu í bókasafni Hveragerðis í Sunnumörk

frá 3. nóvember og fram að jólum.

Breyting á stjórn FEBH

Kæru félagsmenn í Félagi eldri borgara í Hveragerði

Með stuttu millibili hafa bæði formaður félagsins, Áslaug Guðmundsdóttir, og varaformaður, Guðjón
Árnason, forfallast vegna veikinda. Ekki er vitað hversu lengi en við hin í stjórninni sendum þeim
innilegar óskir um góðan bata sem allra fyrst.
Við sem eftir sitjum leituðum ráða hjá formanni landssambandsins, LEB, Helga Péturssyni og hann
sagði að við ættum að halda strax stjórnarfund, færa varamennina upp í aðalstjórn og skipta með
okkur verkum upp á nýtt, þar til okkar fólk kemur aftur eða í síðasta lagi þegar ný kosning fer fram á
aðalfundi sem ákveðinn hafði verið 23.02.23.
Þetta höfum við gert föstudaginn 21.10. sl. og vinnum nú eftir nýju skipulagi.
Stjórnin er þá þannig skipuð:
Formaður: Sigurlín Sveinbjarnardóttir
Varaformaður: Daði Ingimundarson
Ritari: Marta Hauksdóttir
Gjaldkeri: Steinunn Aldís Helgadóttir
Meðstjórnandi: Björn Guðjónsson
Öll starfsemi félagsins heldur óbreytt áfram og við erum ákveðin í að vinna vel svo undirbúningur
allra viðburða og námskeiða, bæði núna og á vormisseri gangi eins og áætlað var.

Hveragerði 22. október 2022
Með félagskveðjum
Sigurlín Sveinbjarnardóttir, starfandi formaður

Á döfinni

Farið verður í Þjóðleikhúsið 21.nóvember að sjá Svo á himni og er uppselt á þá sýningu.

Sviðaveisla verður í Rósakaffi 11. nóvember kl. 19:00

Nánar auglýst hvenær skráning hefst.

Jólagleði verður í Hótel Rangá 1. desember  Farið verður með rútu frá Þorlákssetri.

Nánar auglýst hvenær skráning hefst.

Stjórnin

Leikhúsferð

Farið verður í Þjóðleikhúsið að sjá “Sem á himni” þann 21. október n.k. kl. 20:00

Rútan fer frá Þorlákssetri kl. 18:45
 
Staðfesta þarf þátttöku með því að svara þessum pósti í síðasta lagi 14. október eða hafa samband á skrifstofuna milli kl. 13-16 í síma 4835216.
Rukkun mun svo verða send í heimabanka og þarf að greiðast strax til að komast með.
Félagið mun greiða  helming miðans sem er kr. 7.900.- og verður því kr.  3.950.-.  Helming rútugjalds sem er kr. 100.000.- greiðir félagið og hinn helmingur rútugjaldsins deilist á milli félaga eftir því hve margir fara.
Bestu kveðjur
Stjórnin

Útskurður og tálgun

Námskeiðið hefst næsta föstudag 7. október kl. 13:30-15:00   og verður í handavinnuhúsi Grunnskólans.

Vonandi hafa sem flestir áhuga á þessu námskeiði sem kostar ekkert nema áhöld og efni
Kveðja
Stjórnin

Haustfundur

Haustfundur verður haldinn næsta sunnudag 25. september kl. 15:00.

Farið verður yfir vetrardagskrána og boðið upp á kaffi og meðlæti.

Hægt verður að skrá sig á þau námskeið sem eru í boði á Haustfundinum.  Fólk er kvatt til að lesa blöðin vandlega áður en það skráir sig. Einnig verður einhver úr stjórninni  í Þorlákssetri eftir helgina, mánudag til fimmtudags kl. 13:00-16:00 í síma: 4835216 ef einhver vill skrá sig í félagið eða á námskeið.
Stjórnin

Fréttabréf haust 2022

Fréttabréf

Félags eldri borgara í Hveragerði september 2022

Haustfundur verður haldinn í Þorlákssetri

sunnudaginn 25. september kl. 15:00

Þar verður starfið kynnt og skráning á viðburði vetrarins 

 Tilgangurinn með þessu fréttabréfi er að kynna starf Félags eldri borgara í Hveragerði fyrir bæjarbúum og hvetja alla 60 ára og eldri til að taka þátt í fjölbreyttu starfi þess. Stjórn félagsins hefur sett saman dagskrá yfir vetrarstarfið og fylgir hún þessu fréttabréfi.

Dagskráin er að stórum hluta byggð á hefð undanfarinna ára en einnig á niðurstöðum félagsmanna frá hugmyndahitting okkar í maí sl. Bryddað verður upp á mörgum nýjungum, margt spennandi í boði og á mismunandi tímum, svo fólk sem enn er í fastri vinnu geti líka fundið ýmislegt sem hentar. Við bendum á að margir sem hingað hafa flutt á efri árum hafa fundið í félaginu allt í senn; skemmtilegan félagsskap, tækifæri til að sinna áhugamálum, fjölbreyttni í heilsurækt og að njóta menningar meðal vina.

Félagið okkar telur um það bil 300 félaga. Við erum svo heppin að eiga félagsheimilið Þorlákssetur, á hæðinni fyrir ofan heilsugæsluna að Breiðumörk 25 b. Þar fer mestallt félagsstarf fram en í ár höfum við einnig starfsaðstöðu hjá Heilsustofnun NLFÍ og Skyrgerðinni.

Frekari upplýsingar um starfið og dagskrá vetrarins, er einnig að finna á vefsíðu félagsins: www.hvera.net

Afþreying í Þorlákssetri

Í Þorlákssetri verða fastir liðir í viku hverri, félagsvist handavinnuhópur, bridge, boccia og ljósmyndahópur og tréútskurður/tálgun er í handavinnuhúsi Grunnskólans.

Listanámskeið

Á haustönn höfum við fengið til okkar frábæra kennara til að halda stutt námskeið í vatnslitamálun, ritlist og fríhendis útsaum. Spennandi nýung og verða þau öll haldin í Þorlákssetri.

 Heilsuefling

Gönguhópur félagsins hittist vikulega og gengur frá Þorlákssetri og við höfum einnig fengið frábæran þjálfara til að leiða dansleikfimi í Skyrgerðinni. Yogatímar og Yoga Nidra slökun verður í Kapellunni og vatnsleikfimi í Baðhúsinu á Heilsustofnun NLFÍ, þar sem við höfum fengið góða aðstöðu.

Menning og fræðsla

Nokkrar leikhúsferðir og Vínartónleikar eru á dagskrá í vetur. Fræðslu- og skemmtikvöld verða á föstudagskvöldum og þar verður meðal annars leitað í hugmyndir frá hittingnum okkar í maí í vor. Þessir viðburðir verða auglýstir sérstaklega, þegar að þeim kemur.

Kórinn Hverafuglar

Söngstjórinn okkar er Örlygur Atli Guðmundsson, en hann hefur stjórnað kórnum í mörg ár, með litlum hléum. Kórinn verður 20 ára í desember og stefum við að einhverjum skemmtilegheitum að því tilefni, einnig hefur ferðanefndin okkar allt eins hug á að fara með kórinn í söngferð erlendis með vorinu. Nýir félagar eru velkomnir í kórinn og ekki þarf að vera söngvanur eða kunna að lesa nótur. Upplýsingar gefa Örlygur í síma: 8243677 email: orlyguratli@simnet.is og Sæunn í síma: 8626589 email: saeunnfg@gmail.com

Félagsfundir

Félagsfundir eru fjórir á ár, haustfundur, þar sem línur eru lagðar fyrir vetrarstarfið, jólagleði, aðalfundur og vorfundur, en með honum lýkur vetrarstarfinu.

Heimasíða og tölvupóstur

Heimasíðu félagsins er: www.hvera.net og unnið er að því að uppfæra og betrumbæta hana á margan hátt. Tölvupóstfang félagsins er: torlaksetur@gmail.com Þeir félagsmenn sem hafa tölvupóstfang, en fá ekki póst frá félaginu, eru hvattir til að koma upplýsingum um póstfang sitt til ritara félagsins. Félagsmenn sem ekki eru með tölvupósfang, fá tilkynningar símleiðis eða með bréfi í pósti.

 Félagsaðild

Ef þú ert 60+ þá ertu hjartanlega velkomin í FEB Hveragerði. Félagsgjald er 4.500 kr á mann á ári. Þegar þú gerist félagi færðu afsláttarkort sem veitir afslátt hjá fjölmörgum verslunum og þjónustuaðilum um allt land. Skráðu nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og netfang og sendu á netfang: torlaksetur@gmail.com Þegar umsókn þín er móttekin hjá félaginu, sendir þjónustu-bankinn okkar greiðsluseðil í heimabankann þinn og þegar þú hefur greitt félagsgjaldið færðu sent félagsskírteini og ert þar með skráð/ur í félagaskrá FEB Hveragerði.

 

Með þessu fréttabréfi vill Félag eldri borgara kynna bæjarbúum starfsemi sína.  Félagið er opið öllum bæjarbúum 60 ára og eldri.

Stjórn FEB Hveragerði 2022 – 2023

Formaður              Áslaug Guðmundsdóttir               893 2775

Varaformaður       Guðjón Árnason                            891 8301

Ritari                     Marta Hauksdóttir                        868 7405

Gjaldkeri               Steinunn Aldís Helgadóttir           661 2179

Meðstjórnandi      Sigurlín Sveinbjarnardóttir           898 2488

Varastjórn             Daði Ingimundarson                     897 3536

Varastjórn             Björn Guðjónsson                          866 6840

 

Kynnið ykkur dagskrá félagsins og velkomin að takið þátt!

FEB Hveragerði – Breiðumörk 25 b

Haustferð

Haustferð FEBH 2022

 

Miðvikudaginn 14. september 2022 verður farið í dagsferð um Njáluslóðir. Sigurlín Sveinbjarnardóttir, meðstjórnandi í stjórn FEBH, hefur skipulagt ferðina og verður leiðsögumaður í rútunni.

Brottför frá Þorlákssetri er kl. 9.00. Fyrst er stoppað við Hellana við Hellu. Þetta eru líklega elstu manngerðu vistarverurnar sem varðveist hafa á Íslandi. Þar fáum við leiðsögn um tvo hella.

Þá er haldið að Hótel Rangá og snæddur hádegisverður sem er: Lax með sætkartöflumauki, eplum, sinnepsfræjum, spergilkáli, granóla og hvítvínssósu. Kaffi og súkkulaði á eftir.

Síðan er ekið um helstu sögustaði á svæðinu þar sem Sigurlín segir frá nokkrum veigamiklum  atburðum sem þar áttu sér stað á söguöld. Ekki verður sagan þó rakin heldur gripið niður hér og þar. Einnig sagðar aðrar stuttar sögur úr nútímanum.

Síðdegiskaffi fáum við í félagsheimilinu Goðalandi í Fljótshlíð, kaffi og heimabakaðar pönnukökur með rjóma og/eða upprúllaðar.

Þá kemur Bjarni Harðarson, sagnamaður og bóksali, fæddur í Hveragerði og segir okkur frá Njálu á sinn einstaka og skemmilega hátt.

Við njótum þess að sjá á veggjum myndlist eftir listakonuna Þórhildi Jónsdóttur frá Lambey sem hefur málað helstu persónur í Njálu eins og hún sér þær fyrir sér. Þessi sýning er sérstaklega sett upp fyrir okkur. Þá verður haldið heim á leið, etv. með smá stoppi, komið í Hveragerði um kl. 18.30.

 

Hámarks fjöldi verður 55 manns.

Félagið mun greiða 50% af kostnaði, þannig að hver félagi greiðir þá kr. 7.500.- eða kr. 15.000.- á hjón.

Skráning í ferðina er í síma 661 2179 (Steinunn Aldís)

Fyrir hönd stjórnar

Steinunn Aldís

gjaldkeri