Þann 20. apríl s.l. (síðasta vetrardag) var haldinn vorgleði FEBH á nýjum veitingastað „Reykjafoss“ sem hjónin Ólafur Reynisson og Anna María Eyjólfsdóttir reka og var þetta opnunarteiti þeirra. Mættu rúmlega 70 manns. Var þetta hin besta skemmtun og vel heppnuð, mjög góður matur, söngur, gamanmál o.fl. Síðan sá Páll Sigurðsson um dansfimina fram eftir kvöldi.