Sviðaveisla 27. október 2023

Kæru félagar. Nú er komið að sviðaveislunni sem allir bíða eftir.

Sviðaveisla 27.október 2023 í Rósakaffi  hefst kl. 19.00. Félagið niðurgreiðir um 25% og er verðið því 2.500.- kr. á hvern félagsmann. Innifalið í verði eru svið (hálfur haus á mann), rófustappa og kartöflumús. Góð tilboð verða á barnum. Karlakór Hveragerðis kíkir í heimsókn. Skráning og greiðsla fer fram á Sportabler. Skráningu lýkur 24.október.  Pláss er fyrir 70 manns, en ef þátttaka verður mikil verður önnur sviðaveisla 3. nóvember. Ef vandræði verða með rafræna skráningu þá hafið samband við skrifstofu félagsins mán. – fimmtud. kl. 13 – 15

Bestu kveðjur

Stjórnin.

0 replies

Skildu eftir svar

Want to join the discussion?
Feel free to contribute!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *