Jólafundur FEBH

“Hinn árlegi jólafundur FEBH verður haldinn að Hótel Örk miðvikudaginn 13. desember 2017 kl. 14.00.

Dagskrá:
Sr. Jón Ragnarsson flytur hugvekju
“Hverafuglar” kór eldri borgara FEBH flytur nokkur lög undir stjórn Örlygs Atla Guðmundssonar
Jólakveðja úr grunnskólanum
Úrslitakeppni í spurningaleiknum, stjórnandi Sigurður Blöndal

Kaffihlaðborð kr. 2.000.-

Hægt er að skrá sig á lista sem liggur frammi í Þorlákssetri en einnig má hafa samband við Formann FEBH Gísla Garðarsson í síma 862 7501 eða Jónínu Haraldsdóttur ritara í síma 866 4398″

Leikhúsferð í janúar

Til stendur að fara í leikhúsferð í janúar að sjá forsýninguna “Himnaríki og helvíti” eftir Jón Kalman Stefánsson í Borgarleikhúsinu. Ekki er komin dagsetning nákvæmlega hvenær það verður, en áætlað að það verði fyrir 11. janúar 2018. Frítt er í leikhúsið, aðeins rúta sem þarf að greiða fyrir. þeir sem áhuga hafa skrifi sig á lista sem er í Þorlákssetri eða hafi samband við:
Kristín Egilsdóttir sími 896 3436
Steinunn Þórarinsdóttir sími 868 6543
Sigurður Magnússon sími 822 4211

Spurningakeppnin

Þá er komið að undanúrslitum í spurningakeppninni góðu, á morgun miðvikudag 29. nóv. kl. 13.00 keppa “Stjórnin og Kiljan” í Þorlákssetri. Kaffi og meðlæti.

Ný upplestrarskrá Bókmenntahópsins


Nú er upplestrarskráin orðin veflægur gagnagrunnur á hvera.net sem hægt er að leita í. Hér er hægt að slá inn leitarorð, t.d. nafn upplesara eða höfundar og fá þannig frekari upplýsingar úr skránni. Sem dæmi ef slegið er inn nafnið Kristbjörg fást öll þau skipti sem Kristbjörg hefur lesið upp og einnig ef einhver höfundur efnis ber sama nafn. Þetta auðveldar líka að finna út hvort að tiltekið efni hafi verið lesið upp áður með því að slá inn nafn höfundar. Neðst er síðan birtur fjöldi skipta sem leitarorðið eða nafnið kemur fyrir í heildarskránni.
Þegar skráin er sett inn núna hafa meðlimir Bókmenntahópsins lesið upp í 2.127 skipti frá því byrjað var að skrá upplestrana.

Skoða síðuna hér!

Spurningakeppnin / súpa

Þá er “Stjórnin” komin í úrslit í spurningakeppninni. Næsta miðvikudag 22. nóv. verður boðið upp á kjúklingasúpu að hætti Kristínar Dagbjartsdóttur og verður byrjað á henni kl. 12.30  síðan hefst keppnin kl. 13.00. Þá keppa Góðir hálsar og Sniglarnir.

Spurningakeppnin

Nú er komið að spurningakeppni innan FEBH sem verður næstu miðvikudaga og hefst kl. 13.00 Kaffi og meðlæti. Fyrsta keppnin verður miðvikudaginn 25. október. Þá keppa “Göngugarpar og Sniglar”.
Um að gera að koma og fylgjast með sínu liði.

Súpufundur 18. okt.

Næsti súpufundur verður miðvikudaginn 18. okt. 2017 kl. 12.00 á hádegi í Þorlákssetri Gísli Páll Pálsson mætir og segir frá Landsmóti UMFÍ 60+ sem haldið var s.l. sumar.
Mætum í grjónagraut og slátur.

Frá leikhúsnefnd

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir söngdagskrána “Söngur og leikur í 70 ár” föstudaginn 13. okt. 2017 kl. 20.00 í Leikhúsinu Austurmörk 23 Hveragerði. Flutt verða lög úr leikritum sem leikfélagið hefur sýnt á undanförnum árum t.d. Saumastofunni, Þið munið hann Jörund, Þrek og tár, Línu langsokk, Dýrunum o.fl. Þriggja manna hljómsveit undir stjórn Guðmundar Eiríkssonar sér um undirleik.
Miðaverð er kr. 2.500.- til FEBH félagsmanna ef næst í 10 manna hóp eða fleiri annars er miðaverð kr. 3.000.-
Miðapantanir eru hjá
Kristín Egilsdóttir í síma 896 3436
Steinunn Þórarinsdóttir í síma 868 6543
Sigurður Magnusson í síma 822 4211

Jólahlaðborð á Hótel Örk.

Eins og undanfarin ár býður Hótel Örk upp á jólahlaðborð með dagskrá og dansleik 4. desember 2017. Stjórnandi er Gunnar Þorláksson.
Verð er kr. 8.000.- pr. mann Einnig er boðið upp á gistingu í 2ja manna herbergi fyrir þá sem það vilja og er verðið kr. 14.000.- með morgunmat og öllu pr. mann aukagjald í einbýli kr. 3.500.-

Þeir sem hafa áhuga vinsamlega skrifi sig á lista í Þorlákssetri fyrir 1. nóvember n.k.

Frá leikhúsnefnd

Í boði er önnur leikhúsferð nú í Borgarleikhúsið að sjá “Guð blessi Ísland” þetta er forsýning (generalprufa) sem verður fimmtudaginn 19. október 2017 kl. 20.00. Ekkert kostar inn á leiksýninguna aðeins kr. 1.500.- á mann með rútu sem fer frá Þorlákssetri kl. 18.30. Listi liggur frammi í Þorlákssetri einnig má hafa samband við Kristínu Egilsdóttur í síma 896 3436, Steinunni Þórarinsdóttur í síma 868 6543 eða Sigurð Magnússon í síma822 4211