Fræðsla og spjall 4. okt.

Minnum á fræðslu- og skemmtidagskrána miðvikudaginn 4. okt. kl. 12.00 í Þorlákssetri Valgerður Guðmundsdóttir útbýr “Gulrótarsúpu” af sinni alkunnu snilld.  Sigurður Blöndal dregur saman lið í spurningakeppninni og Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri mætir og fræðir okkur um flutninga bæjarskrifstofunnar og hvað er á döfinni í bæjarmálum.

Sýningu á “Föðurnum” frestað.

Vegna óviðráðanlegra orsaka verður sýningu á “Föðurnum” í Þjóðleikhúsinu sem vera átti 6. okt. frestað til 11. okt.

Súpufundur miðvikud. 27. sept. kl.12.00

Minnum á súpufundinn miðvikudaginn 27. sept. 2017 kl. 12.00 Garðar Gíslason hrl. mætir og fræðir okkur um erfðamál og svarar fyrirspurnum.

Bólusetning.

Hjúkrunarfræðingur verður í Þorlákssetri mánudaginn 2. október 2017 kl. 10.00 til bólusetningar gegn flensu fyrir eldri borgara.
Vinsamlega mætið kl. 10.00 því þær fara um leið og síðasti er búinn.

Frá leikhúsnefnd.

Föstudaginn 6. okt. 2017 kl. 19.30 verður Þjóðleikhúsið með forsýningu á leikritinu “Faðirinn”, harmrænum gamanleik um mann sem er farinn að tapa áttum. Leikari er Eggert Þorleifsson. Þar sem þetta er forsýning þá er miðinn á kr. 1000.- og rúta kr. 1.500.- samtals kr. 2.500.- sem má greiða inn á reikning félagsins undir merki leikhús Farið verður frá Þorlákssetri kl. 18.00
Þeir sem áhuga hafa á að sjá þetta, vinsamlega skrifi sig á lista í Þorlákssetri eða hafi samband við:
Kristín Egilsdóttir í síma 896 3436
Steinunn Þórarinsdóttir í síma 868 6543
Sigurður Magnússon í síma 822 4211

Einnig er í boði leikhúsferð í Borgarleikhúsið þann 19. okt. að sjá leikritið “Guð blessi Ísland” sem er einnig forsýning, nánar um það síðar.

Leikhúsnefnd

Dagskrá miðvikudaga (Fræðsla og spjall) næstu vikur:

“Viljum minna á fræðslu- og skemmtidagskrárfundinn á morgun miðvikudaginn 20. sept. kl.13.00 í Þorlákssetri. Kaffi og með því og létt spjall.

Miðvikudaginn 27. sept. kemur Garðar Gíslason hrl. og flytur erindi um erfðamál og svarar spurningum.

Miðvikudaginn 4. okt. Aldís Hafsteinsdóttir fræðir okkur um flutning bæjarskrifstofunnar og því sem framundan er í bæjarmálum.

Miðvikudaginn 11. okt. Gunnar Þorláksson segir okkur frá Jólahlaðborði, sæludögum á Örkinni og ferð til Calpe á Spáni næsta vor.”

Haustfundur FEBH 2017

FEBH fundarboð

Haustfundur félagsins verður haldinn fimmtud. 7. september kl. 14:00 í Þorlákssetri.

Dagskrá vetrarins kynnt.  Kaffihlaðborð kr. 1000.

Frábært tækifæri til að kynnast félaginu og félögunum.

Blómstrandi dagar 2017 í Þorlákssetri.

Blómstrandi  dagar 17. – 20. ágúst í Þorlákssetri, félagsheimili eldri borgara í Hveragerði, Breiðumörk 25.

Myntsýning Helga Ívarssonar, vönduð og fróðleg sýning.

Laugard. 19. ágúst kl. 15:00 skemmta feðginin Ólafur Beinteinn Ólafsson tónlistarmaður og Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir, sópransöngkona. Ingibjörg mun flytja vinsæl  íslensk og erlend sönglög. Ólafur leikur undir á harmónikku og píanó og stjórnar hópsöng.

Opið hús alla dagana kl. 14:00 -16:00. Heitt á könnunni. Allir velkomnir.

 

Síðsumarferð FEBH til Vestmannaeyja.

Síðsumarferð félagsins verður farin mánudaginn 28. ágúst  til Vestmannaeyja.

Mæting kl. 7:30 í Þorlákssetur, farið kl. 7:45. Það tekur 1 og ½ klst. að keyra í Landeyjahöfn +  mæting 30 mín fyrir brottför,  (2 klst.).

Farið með fyrstu ferð með Herjólfi frá Landeyjahöfn kl. 9:45 og til baka kl. 18:45. Sjóferðin tekur 35 mín. Erum með rútuna allan daginn.

Tanginn  er rómaður matsölustaður. Fáum okkur eitthvað gott af matseðlinum,  t.d súpu og salatbar (kr. 1850) eða eitthvað annað. Það greiðir hver fyrir sig.

Leiðsögn um eyjuna ca. 2 klst. Leiðsögumaður Kristján Óskarsson.  Heimsækjum Eldheima sem er gosminjasýning, sem miðlar fróðleik um eldgosið 1973. Kr. 1900 fyrir eldri borgara. Leiðsögn ca 1 klst. Það greiðir hver fyrir sig.

Heimboð í húsnæði eldri borgara í Krikanum.

Sæheimar, Fiska og Náttúrugripasafn Vestmannaeyja heimsótt,  ca. 45 mín., kr. 1200. Það greiðir hver fyrir sig.

Verð fyrir ferðina er kr. 5500, greiðist fyrir 21. ágúst í Arion banka,  reikn. nr. 52 merkt „Ferð“.

FEBH félagar, takið frá þennan dag, takmarkaður sætafjöldi, aðeins 40 sæti.  Fyrstur kemur fyrstur fær.

Skráið ykkur hjá ferðanefndinni fyrir 21. ágúst:

Kristín Dagbjartsdóttir 557 4884 / 860 3884

Egill Gústafsson                                                                                                       

Fjóla Ragnarsdóttir

Söngur og spil í Þorlákssetri á Blómstrandi dögum.

Blómstrandi dagar/ Frækin feðgin.

Feðginin Ólafur Beinteinn Ólafsson tónlistarmaður og Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir sópransöngkona mæta hinn 19. ágúst nk. kl. 15:00 í Þorlákssetri, sal eldri borgara. Ingibjörg mun flytja vinsæl íslensk og erlend sönglög. Ólafur leikur undir á harmónikku og píanó. Hann mun líka stjórna hópsöng.

Blómstrandi dagar bæta geð/ best að sem flestir verði með. Sönglistin eflir okkar sál./ Söngur er mikið þarfamál.