Miðvikudagur 15. febr.

Þorlákssetur, miðvikud. 15. febrúar kl. 13:00
kemur Jakob Veigar myndlistarmaður í heimsókn hann er gestur í listamannahúsinu Varmahlíð.
Jakob Veigar er velmenntaður byggingartæknifræðingur og vann í N-Noregi. Hann lauk námi í Listaháskóla Íslands, framhaldsnámi í Vín í Austurríki þar sem hann hefur haft annan fótinn síðasta árið. Hann málaði og samdi einnig tónlist, smáskífan Darkness var afrakstur þeirrar vinnu og kom út árið 2011. Öll umslögin voru handmáluð af Jakobi og tölusett.
„Ég sagði í gríni að ég vildi komast inn í skólann sem hafnaði Hitler á sínum tíma,“ segir Jakob og sú varð raunin. Þetta skiptinám er oftast í eina önn en honum bauðst að vera lengur og sótti hann því um undanþágu til þess. Þar kynntist hann vel Kirsi Mikkola, sem er prófessor við þennan virta skóla og er virt finnsk myndlistarkona. „Við urðum góðir vinir og hún tók mig alveg í gegn og breytti mér mjög mikið. Hún vildi endilega að ég kæmi aftur og yrði hjá sér,“ segir Jakob. Á þessu ári heldur hann til Austurríkis og vinnur undir leiðsögn Mikkola.
Jakob, er fæddur og uppalinn í Hveragerði, segir bæjarbúa listhneigða upp til hópa. Þeir standa líka þétt við bakið á sínu fólki en Hljómlistarfélagið í Hveragerði, sem er félagsskapur ungra manna, styrkti Jakob til náms þegar hann var í skiptinámi í Vín. Hann er einstaklega þakklátur fyrir þann stuðning, sem hann segir lýsa samheldni bæjarbúa vel.

Miðvikudagsfundur 8. febr.

Miðvikudagur. 8. febrúar kl 13:00
Jakob Veigar myndlistamaður kemur í heimsókn
hann er gestur í Varmahlíð.
Hann segir frá því sem hann sýslar með.
Allir velkomnir

Aðalfundur

 

                       Aðalfundur

Félags eldri borgara í Hveragerði verður haldinn fimmtudaginn 16. febrúar 

kl. 14: 00  í Þorlákssetri.

Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffihlaðborð kr. 1000.                          

Stjórnin

Frá uppstillingarnefnd.

Tilkynning frá uppstillingarnefnd

 

Stjórn FEBH hefur tilkynnt að aðalfundur félagsins verður haldinn 16. febrúar 2017 kl. 14:00 í Þorlákssetri, húsi félagsins.

Uppstillingarnefnd hefur lokið störfum og tilkynnir hér með niðurstöður.

Kjörtímabili í aðalstjórn hefur lokið Kristín Dagbjartsdóttir og gefur hún kost á endurkjöri.

Kjörtímabili í varastjórn hefur lokið Helga Baldursdóttir og gefur hún kost á endurkjöri.

Skoðunarmenn ársreikninga ber að kjósa árlega og eru þeir Garðar Hannesson og Sigurjón Guðbjörnsson. Þeir gefa kost á endurkjöri.

Fulltrúar á þing LEB eru tilnefndir til kjörs og eru þeir                Helga Haraldsdóttir og Egill Gústafsson.

Þessar tillögur bárust uppstillingarnefnd fyrir 18. janúar 2017.

 

Hveragerði, 1. febrúar 2017

Jóna Einarsdóttir, Ingibjörg S. Guðjónsdóttir og Sigurjón Guðbjörnsson

 

 

Miðvikud. 1. febr.

FEBH Þorlákssetri   miðvikud. 1.febrúar kl 13:00 Því miður féll niður heimsókn Ljóðaseturs Hveragerðis s.l. miðvikudag vegna óviðráðanlegra ástæðna. En þess í stað verður kvæðastund í léttum dúr með Kristjáni Runólfssyni, Sæunni Freydísi Grímsdóttur, Gústaf Óskarssyni og Gísla Garðarssyni, miðvikud. 1. feb. Kl 13:00. Kæru félagar allir sem hafa gaman af kveðskap , komið og takið þátt og verið með okkur.               Fræðslunefndin.

Naktir í náttúrunni hjá Leikfélagi Hveragerðis.

Naktir í náttúrunni.

Föstudaginn 27. janúar frumsýnir Leikfélag Hveragerðis leikritið Naktir í náttúrunni sem byggt er á kvikmyndinni „ The full monty.“  Jón Gunnar Þórðarson leikstjóri hefur samið leikgerðina og staðfært hana að Hveragerði og nágrenni. Geta má þess að Leikfélag Hveragerðis er 70 ára á þessu ári og hafa verið settar upp sýningar öll árin, ein eða fleiri.  Meðal annarra  fléttast inn í þetta Eden og Tívolíið sáluga, Kjörís, Heilsustofnun, Hótel Örk  svo eitthvað sé nefnt, einnig kjararáð og búvörusamningar og fleira.  Leikritið segir frá nokkrum garðyrkjumönnum og fleirum sem ákveða að auka tekjurnar með því að koma fram og sýna dans í þeim anda, sem myndin sem fylgir fréttinni  sýnir.  Sérstaklega bera þeir hag félaga síns fyrir brjósti   þar sem hann er atvinnulaus  og á það á hættu að missa samband við son sinn borgi hann ekki meðlagið. Leikarar eru 18 talsins og þar á meðal  all nokkrir sem ekki hafa leikið með Leikfélagi Hveragerðis áður.

FEBH  hefur ákveðið að efna til hópferðar á leikritið „Naktir í náttúrunni“                    

miðvikudagskvöldið  1. febrúar kl 20:00.                                                                         

Miðaverð fyrir hópa 10 eða fleiri kr 2500 og greiðist við innganginn.                            

Þeir sem vilja nýta sér afsláttinn skrifi sig á listann í Þorlákssetri.

 

Minnum á Þorrablótið

 

Kæru félagar

Minnum á þorrablót FEBH 2017 n.k. fimmtud. 26. janúar  í Reykjafossi, Austurmörk 4

Húsið opnar kl. 19:00.

Þorramatur af bestu gerð, lambalæri með brúnuðum og alles.

Söngur, grín og gaman.     Páll Sigurðarson spilar undir söng og dansi.

Verð aðeins kr.  5500.         Greiðist á reikning nr 52 í Arion banka, merkt:  Blót.

Fólk kemur með eigin drykki hvort sem er á flösku eða pela.

Þátttökulisti liggur frammi í Þorlákssetri.

Fyrir hönd stjórnar.  Gísli Garðarson, form.  sími  862 7501

Þorrablót FEBH 2017

Þorrablót FEBH verður haldið fimmtudaginn 26. janúar 2017 kl. 19.30 í Reykjafossi, Austurmörk 4.
Húsið opnar kl. 19.00
Verð kr. 5.500
Fólk komi með eigin drykki.
Þátttökulisti liggur frammi í Þorlákssetri.
Einnig má hafa samband við Gísla Garðarsson, formann í síma 862-7501 –
FYRIR 20. JAN.

Miðvikudagar í jan.

Kæru félagar í FEBH
Gleðilegt nýtt skemmtilegt ár, vonumst til að sjá sem flesta á nýju ári.
Dagskráin í Þorlákssetri á miðvikudögum í janúar kl 13:00.
11. janúar. Gestur: Þórunn Jarla Valdimarsdóttir rithöfundur miðlar okkur úr safni sínu fróðleik og skemmtun.
18 janúar. Gestur Bjarni Harðarson Bóksali og rithöfundur, skemmtilegur að vanda.
25. janúar. Gestur: Ljóðasetur Hveragerðis, með dagskrá, kveðskapur og fl.

Með bestu kveðju
Fræðslunefnd FEBH Kristín Dagbjartsdóttir og Guðlaug Birgisdóttir.